Samsett hlutfall í janúar var 102,5% en það var 101,6% í janúar í fyrra. Samsett hlutfall síðustu 12 mánaða er 98,8%.
Nafnhækkun fjárfestingaeigna var 1,4% í janúar.
VÍS greiddi viðskiptavinum sínum um 1,4 milljarða króna í tjónabætur í mánuðinum.
*Samsett hlutfall er tjónakostnaður, endurtryggingakostnaður og rekstrarkostnaður sem hlutfall af iðgjöldum
**Hafa ber í huga að tjónakostnaður tryggingafélaga getur sveiflast mjög á milli mánaða
Nánari upplýsingar veitir Andri Ólafsson samskiptastjóri í síma 660-5105