Íslandsbanki hefur gefið út ársskýrslu og áhættuskýrslu fyrir árið 2018.

Ársskýrsla
Í skýrslunni má finna áhugaverðar upplýsingar um starfsemi bankans á liðnu ári. Sérstök áhersla er lögð á þá stafrænu þróun sem hefur átt sér stað innan bankans sem hefur skilað sér í enn betri þjónustu fyrir viðskiptavini. Rekstrinum eru einnig gerð góð skil og farið er yfir árangur viðskiptasviða auk dótturfélagsins Íslandssjóða. Þá er einnig að finna í skýrslunni yfirgripsmikla samantekt um samfélagslega ábyrgð Íslandsbanka og stuðning bankans við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.

Skýrslan kemur út á íslensku og ensku og eru henni einnig gerð góð skil á nýjum Íslandsbankavef www.islandsbanki.is.
                     
Áhættuskýrsla
Markmið áhættuskýrslu Íslandsbanka er að uppfylla lögbundnar kröfur um upplýsingagjöf og veita markaðsaðilum og öðrum áhugasömum upplýsingar sem ætlað er að auka skilning á áhættustýringu og eiginfjárstöðu bankans.
Skýrslan er á ensku.

Hægt er að nálgast ofangreindar skýrslur, ásamt fjárhagsupplýsingum, á ársskýrsluvef bankans: https://www.islandsbanki.is/is/flokkur/bankinn/arsskyrsla-islandsbanka-2018


Nánari upplýsingar veita:

Fjárfestatengsl – Gunnar Magnússon, gunnarsm@islandsbanki.is sími 440 4665

Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, edda.hermannsdottir@islandsbanki.is sími 440 4005

Póstlisti Íslandsbanka
Ef þú vilt gerast áskrifandi að kauphallarfréttum Íslandsbanka þá vinsamlegast skráðu þig hér: https://www.islandsbanki.is/um-islandsbanka/fjarfestatengsl/hafdu-samband/postlisti/
Um Íslandsbanka
Íslandsbanki er leiðandi fjármálafyrirtæki á Íslandi með heildareignir sem nema 1.130 ma. kr. og með 25-50% markaðshlutdeild á innanlandsmarkaði. Saga Íslandsbanka spannar 140 ár af þjónustu við lykilatvinnuvegi þjóðarinnar en á þessum tíma hefur bankinn byggt upp sérþekkingu á sviði ferðaþjónustu, sjávarútvegs og orku. Framtíðarsýn Íslandsbanka er að vera #1 í þjónustu og vinna þrjú viðskiptasvið þétt saman til að tryggja góð sambönd við viðskiptavini bankans. Til að koma enn betur til móts við þarfir viðskiptavina, þá hefur Íslandsbanki þróað margvíslegar nýjar stafrænar lausnir s.s. öpp fyrir bankaþjónustu og Kass. Á sama tíma rekur bankinn skilvirkasta útibúanetið með 14 útibú staðsett á lykilstöðum um land allt. Sjötta árið í röð mældist Íslandsbanki efstur í Íslensku ánægjuvoginni  hjá viðskiptavinum í bankaþjónustu og þá var bankinn einnig útnefndur besti bankinn á Íslandi árið 2018 af Euromoney. Íslandsbanki hefur BBB+/A-2 lánshæfismat frá S&P Global Ratings. www.islandsbanki.is 
Fyrirvari
Framangreind fréttatilkynning gæti vísað til spár um framtíðarhorfur sem er háð áhættu- og óvissuþáttum og getur þýtt að raunverulegur árangur verði umtalsvert frábrugðinn því sem spáð er í þessari fréttatilkynningu. Íslandsbanki hf. hefur ekki skyldu til að, og mun ekki, uppfæra þessar spár um framtíðarhorfur félagsins til að endurspegla atburði og aðstæður sem eiga sér stað eftir útgáfu þessarar fréttatilkynningar. Það er ábyrgð fjárfestis að reiða sig ekki seinna meir á spár um framtíðarhorfur sem eru settar fram í þessari  fréttatilkynningu  þar sem þær eiga eingöngu við á þeim tíma sem hún er gefin út.  Spár um framtíðarhorfur gefa ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur og eru allar yfirlýsingar um framtíðarhorfur félagsins fullgildar í heild sinni með tilliti til þessa fyrirvara.

 

Viðhengi