REYKJAVÍK - 11. febrúar 2019
Origo hf. (ORIGO) keypti í síðustu viku alls 1.408.615 eigin hluti fyrir kr. 34.088.483 eins og hér segir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Hlutir í eigu Origo eftir viðskipti |
4.2.2019 | 09:55 | 281.723 | 24,30 | 6.845.869 | 9.001.494 |
5.2.2019 | 10:03 | 281.723 | 24,30 | 6.845.869 | 9.283.217 |
6.2.2019 | 15:03 | 281.723 | 24,00 | 6.761.352 | 9.564.940 |
7.2.2019 | 10:36 | 281.723 | 24,20 | 6.817.697 | 9.846.663 |
8.2.2019 | 10:17 | 281.723 | 24,20 | 6.817.697 | 10.128.386 |
Samtals | 1.408.615 | 34.088.483 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem samþykkt var af stjórn félagsins þann 11. desember síðastliðinn sbr. tilkynningu til Kauphallar sama dag.
Origo hefur nú keypt samtals 9.968.403 hluti, sem samsvarar 85,9% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 244.780.958. Origo á nú samtals 2,18% af heildarhlutafé félagsins sem er 465.303.309, en fyrir átti félagið 8.719.771 hlut.
Samkvæmt endurkaupaáætlunni verða að hámarki keyptir 11.600.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en kr. 300.000.000. Heimildin gildir til 7. mars 2019. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf verða í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.
Nánari upplýsingar
Finnur Oddsson forstjóri í síma 862-0310 eða fo@origo.is og Gunnar Petersen framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 825-9001 eða gp@origo.is.