Arion banki verður með útboð á sértryggðu skuldabréfaflokkunum ARION CB 24 og ARION CBI 26 þann 6. febrúar næstkomandi.

Fjárfestum býðst að greiða fyrir sértryggð skuldabréf með neðangreindum flokkum verðbréfa auk hefðbundins uppgjörs í reiðufé. Verð skuldabréfanna miðast við miðju kröfubils á milli hagstæðustu viðskiptavaka við lokun markaðar á útboðsdegi.

ISIN Flokkur
XS0195066146 HFF150224
XS0195066575 HFF150434
XS0195066658 HFF150644
IS0000024453 RIKB 20 0205
IS0000020717 RIKB 22 1026
IS0000019321 RIKB 25 0612
IS0000028249 RIKB 28 1115
IS0000020386 RIKB 31 0124
IS0000020014 RIKS 21 0414
IS0000020576 RIKS 30 0701
IS0000030732 RIKS 26 0216

Samkvæmt útgáfuáætlun Arion banka verða útboð sértryggðra skuldabréfa haldin að jafnaði fyrsta miðvikudag í hverjum mánuði. Sjá útgáfuáætlun fyrir árið 2019: http://wwwv2.arionbanki.is/bankinn/fjarfestatengsl/skuldabrefafjarfestar/utgafuaaetlun/

Nánari upplýsingar veitir Theódór Friðbertsson, fjárfestatengslum Arion banka, theodor.fridbertsson@arionbanki.is, s. 444 6760