Vátryggingafélag Íslands hf. (VÍS) keypti í seinustu viku 5.750.000 eigin hluti fyrir kr. 59.052.500 eins og hér segir:

Dagsetning Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð Hlutir í eigu VÍS eftir viðskipti
17.12.2018   1.150.000    10,30  11.845.000 38.000.000
18.12.2018   1.150.000    10,30  11.845.000 39.150.000
19.12.2018   1.150.000    10,30  11.845.000 40.300.000
20.12.2018   1.150.000    10,25  11.787.500 41.450.000
21.12.2018   1.150.000    10,20  11.730.000 42.600.000
    5.750.000    59.052.500  

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 3. desember 2018, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 3. desember 2018.

VÍS hefur nú keypt samtals 16.100.000 hluti, sem samsvarar 46% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 165.565.500kr. VÍS á nú samtals 2,18% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.952.642.307, en fyrir átti félagið 26.500.000 hluti.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 22.500.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en kr. 250.000.000. Heimildin gildir til 31. desember 2018. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf verða í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.