Landsbankinn mun halda lokað útboð á víxlum mánudaginn 3. desember 2018 kl. 15:00. Boðnir verða til sölu þrír víxlaflokkar, LBANK 190510 sem er þegar útgefinn flokkur á Nasdaq Iceland og tveir nýir flokkar, LBANK 190611 og LBANK 191210.
Markaðsviðskipti Landsbankans hafa umsjón með útboðinu. Nánari upplýsingar má nálgast í síma 410-7330 eða með tölvupósti, verdbrefamidlun@landsbankinn.is.