Fjárhagsdagatal 2019
Stefnt er að birtingu árshluta- og ársuppgjörs á neðangreindum dagsetningum.
Áður hafði verið tilkynnt um að ársskýrsla og ársreikningur yrðu birt 14. febrúar 2019 en ný dagsetning er 13. febrúar 2019.
Vinsamlegast athugið að dagsetningarnar eru birtar með fyrirvara um breytingar.
Þögult tímabil
Frá og með tíu almanaksdögum fyrir birtingu árshluta- og ársuppgjörs mun Íslandsbanki ekki fjalla um eða svara spurningum um áður óbirta fjárhagslega afkomu né horfur á afkomu bankans á fundum með fjárfestum, greiningaraðilum og/eða öðrum markaðsaðilum. Eins mun bankinn, á ofangreindu tímabili, ekki flytja erindi á fjármálaráðstefnum né taka þátt í umræðum eða símafundum með fjárfestum, greiningaraðilum og/eða öðrum markaðsaðilum þar sem óbirt fjárhagsleg afkoma og horfur í rekstri bankans eru til umræðu.
Nánari upplýsingar veita:
Póstlisti Íslandsbanka
Ef þú vilt gerast áskrifandi að kauphallarfréttum Íslandsbanka þá vinsamlegast skráðu þig hér:https://www.islandsbanki.is/um-islandsbanka/fjarfestatengsl/hafdu-samband/postlisti/
Um Íslandsbanka
Íslandsbanki er leiðandi fjármálafyrirtæki á Íslandi með heildareignir sem nema 1.163 ma. kr. (8,5 milljarðar evra) og með 25-50% markaðshlutdeild á innanlandsmarkaði. Saga Íslandsbanka spannar 140 ár af þjónustu við lykilatvinnuvegi þjóðarinnar en á þessum tíma hefur bankinn byggt upp sérþekkingu á sviði ferðaþjónustu, sjávarútvegs og orku. Framtíðarsýn Íslandsbanka er að vera #1 í þjónustu og vinna þrjú viðskiptasvið þétt saman til að tryggja góð sambönd við viðskiptavini bankans. Til að koma enn betur til móts við þarfir viðskiptavina, þá hefur Íslandsbanki þróað margvíslegar nýjar stafrænar lausnir s.s. öpp fyrir bankaþjónustu, Kreditkort og Kass. Á sama tíma rekur bankinn skilvirkasta útibúanetið með 14 útibú staðsett á lykilstöðum um land allt. Fimmta árið í röð á Íslandsbanki ánægðustu viðskiptavinina á bankamarkaði samkvæmt niðurstöðu Íslensku ánægjuvogarinnar og þá var bankinn einnig útnefndur besti bankinn á Íslandi árið 2018 af Euromoney og einnig besti bankinn árið 2017 af The Banker. Íslandsbanki hefur BBB+/A-2 lánshæfismat frá S&P Global Ratings og BBB/F3 frá Fitch Ratings og er eini íslenski bankinn með lánshæfismat frá tveimur alþjóðlegum lánshæfismatsfyrirtækjum.www.islandsbanki.is
Fyrirvari
Framangreind fréttatilkynning gæti vísað til spár um framtíðarhorfur sem er háð áhættu- og óvissuþáttum og getur þýtt að raunverulegur árangur verði umtalsvert frábrugðinn því sem spáð er í þessari fréttatilkynningu. Íslandsbanki hf. hefur ekki skyldu til að, og mun ekki, uppfæra þessar spár um framtíðarhorfur félagsins til að endurspegla atburði og aðstæður sem eiga sér stað eftir útgáfu þessarar fréttatilkynningar. Það er ábyrgð fjárfestis að reiða sig ekki seinna meir á spár um framtíðarhorfur sem eru settar fram í þessari fréttatilkynningu þar sem þær eiga eingöngu við á þeim tíma sem hún er gefin út. Spár um framtíðarhorfur gefa ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur og eru allar yfirlýsingar um framtíðarhorfur félagsins fullgildar í heild sinni með tilliti til þessa fyrirvara.