Arion banki verður með útboð á sértryggðu skuldbréfaflokkunum ARION CB 22, ARION CBI 25 og ARION CBI 48 þann 7. nóvember næstkomandi.
Sú nýbreytni verður að fjárfestum býðst að greiða fyrir sértryggð skuldabréf með neðangreindum flokkum verðbréfa auk hefðbundins uppgjörs í reiðufé. Verð skuldabréfanna miðast við miðju kröfubils á milli hagstæðustu viðskiptavaka við lokun markaðar á útboðsdegi.
ISIN | Flokkur |
XS0195066146 | HFF150224 |
XS0195066575 | HFF150434 |
XS0195066658 | HFF150644 |
IS0000024453 | RIKB 20 0205 |
IS0000020717 | RIKB 22 1026 |
IS0000019321 | RIKB 25 0612 |
IS0000028249 | RIKB 28 1115 |
IS0000020386 | RIKB 31 0124 |
IS0000020014 | RIKS 21 0414 |
IS0000020576 | RIKS 30 0701 |
Samkvæmt útgáfuáætlun Arion banka verða útboð sértryggðra skuldabréfa haldin að jafnaði fyrsta miðvikudag í hverjum mánuði. Sjá útgáfuáætlun: https://www.arionbanki.is/bankinn/fjarfestatengsl/skuldabrefa-fjarfestar/#utgafuaaetlun
Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 444-7108.