Icelandair Group birtir uppgjör sitt fyrir þriðja ársfjórðung ársins 2018, þriðjudaginn 30. október 2018. Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn miðvikudaginn 31. október 2018 á Icelandair Hótel Reykjavík Natura. Bogi Nils Bogason starfandi forstjóri Icelandair Group, mun kynna afkomuna og svara spurningum ásamt öðrum stjórnendum félagsins. Kynningin hefst kl. 08:30 og verður í Víkingasal 4-5. Morgunverður í boði frá kl. 8:00. Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Icelandair Group: www.icelandairgroup.is og í fréttakerfi Nasdaq OMX Iceland hf.

Hægt verður að fylgjast með fundinum beint á vefslóðinni:
http://www.icelandairgroup.is/investors/reports-and-presentations/webcast-next/