Landsbankinn hf. hefur undirritað samninga við Arion banka hf., Íslandsbanka hf. og Kviku banka hf. um viðskiptavakt á eftirmarkaði með sértryggð skuldabréf útgefin af Landsbankanum. Skuldabréfin eru skráð á Nasdaq Iceland og taka skyldur viðskiptavaka samkvæmt samningi gildi þann 4. október 2018.
Viðskiptavakar munu fyrir opnun markaða dag hvern setja fram kaup- og sölutilboð í sértryggð skuldabréf útgefin af Landsbankanum. Lágmarksfjárhæð tilboða í markflokka og flokka sem áður hafa verið skilgreindir sem markflokkar skal vera 80 m. kr. að nafnverði en hafi flokkur ekki náð 10 ma. kr. stærð miðast tilboðsstærð við 60 m. kr. að lágmarki. Markflokkar eru LBANK CB 21, LBANK CB 23, LBANK CBI 24 og LBANK CBI 28. Flokkar sem áður hafa verið skilgreindir sem markflokkar en eru ekki lengur í reglulegri útgáfu eru LBANK CB 19 og LBANK CBI 22.
Skyldur einstakra viðskiptavaka falla niður á tilteknum viðskiptadegi ef viðskiptavaki hefur átt viðskipti (tilgreind „AUTO“) með sértryggð skuldabréf fyrir 500 m. kr. að nafnverði samanlagt í þeim flokkum sem samningurinn nær til.
Hámarksmunur kaup- og sölutilboða ákvarðast af verði gildra tilboða og tekur mið af árafjölda til lokagjalddaga sértryggðu skuldabréfanna, á hverjum tíma, í samræmi við eftirfarandi töflu:
Tími til lokagjalddaga | Hámarksverðmunur |
0 - 6 mán | Enginn |
6 mán - 2 ár | 0,20% |
2 - 4 ár | 0,30% |
4 - 6 ár | 0,35% |
6 - 9 ár | 0,60% |
9 - 12 ár | 0,70% |
12 - 18 ár | 1,00% |
18 ár eða lengri | 1,15% |
Verðtryggðir flokkar sem eru ótækir til frekari útgáfu vegna reglna Seðlabanka Íslands nr. 492/2001 um verðtryggingu sparifjár og lánsfjár, með síðari breytingum, eru undanþegnir ofangreindum kvöðum um hámarksmun kaup- og sölutilboða.
Frá gildistöku samninga um viðskiptavakt geta viðskiptavakar fengið tímabundin bréfalán í flokki þeirra skuldabréfa sem samningurinn tekur til. Hámarkslán til einstakra viðskiptavaka er 320 m. kr. að nafnverði í hverjum markflokki og flokkum sem áður hafa verið skilgreindir sem markflokkar.