Vátryggingafélag Íslands hf. (VÍS) keypti í liðinni viku 3.205.604 eigin hluti fyrir kr. 35.309.728 eins og hér segir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Kaupgengi Kaupverð Eigin hlutir VÍS eftir viðskipti
10.9.2018 09:31 801.401 11,24 9.007.747   1.937.596 
11.9.2018 11:40 801.401 10,91 8.743.285   2.738.997 
13.9.2018 09:39 801.401 10,96 8.783.355   3.540.398 
14.9.2018 10:15 801.401 10,95 8.775.341   4.341.799 
    Samtals 35.309.728  

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 30. ágúst 2018, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 23. ágúst 2018.

VÍS hefur nú keypt samtals 4.341.799 hluti í félaginu sem samsvarar 16,38% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 47.898.162. VÍS á nú samtals 0,20% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.952.642.307.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 26.500.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en kr. 300.000.000. Heimildin gildir til 31. desember 2018. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf verða í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.