N1 birtir uppgjör sitt fyrir 2. ársfjórðung 2018 eftir lokun markaða miðvikudaginn 29. ágúst næstkomandi.

Opinn kynningarfundur verður haldinn fimmtudaginn 30. ágúst 2018 í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10 - 14 Kópavogi 3. hæð. Eggert Kristófersson forstjóri N1 mun kynna afkomu félagsins og svara spurningum.

Fundurinn hefst kl. 08:30. Boðið verður upp á morgunverð frá kl. 08:00. Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu N1: www.n1.is/fjarfestatengsl