Arion banki hf. lauk í dag, þriðjudag, útboði á víxlum til tólf, sex og fimm mánaða. Í heild bárust 22 tilboð upp á 4.440 milljónir kr. og var tilboðum tekið fyrir 3.380 milljónir kr.
Í heild bárust 6 tilboð í 5 mánaða víxilinn að fjárhæð 780 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,28% - 4,36%. Samþykkt voru tilboð að nafnverði 100 milljónir á 4,32% flötum vöxtum.
Í heild bárust 13 tilboð í 6 mánaða víxilinn að fjárhæð 3.280 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,30% - 4,495%. Samþykkt voru tilboð að nafnverði 3.280 milljónir á 4,495% flötum vöxtum.
Í heild bárust 3 tilboð í 12 mánaða víxilinn að fjárhæð 380 milljónir kr., á 4,525%-4,60% flötum vöxtum. Engum tilboðum var tekið í 12 mánaða víxla að þessu sinni.
Stefnt er að því að víxlarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Íslandi 20. ágúst næstkomandi.
Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka haraldur.eidsson@arionbanki.is s: 856-7108.