Reykjavíkurborg hefur ákveðið í samræmi við útgáfuáætlun 2018 að efna til útboðs á skuldabréfaflokkum RVK 32 1 og RVKN 35 1 miðvikudaginn 15. ágúst. Heimild til lántöku á árinu 2018 er 6.611 m.kr.
Reykjavíkurborg hefur ekki haldið útboð það sem af er árs. Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að ákveða útboðsfjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum.
Útboðið verður með því fyrirkomulagi að samþykkt tilboð bjóðast á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) mun ákvarða söluverð.
Heildarstærð RVK 32 1 fyrir þetta útboð nemur alls 1.440 m.kr. að nafnvirði.
Heildarstærð RVKN 35 1 fyrir þetta útboð nemur alls 6.090 m.kr. að nafnvirði.
Uppgjör sölu fer fram mánudaginn 20. ágúst 2018.
Arion banki, Íslandsbanki, Kvika banki og Landsbanki eru umsjónaraðilar útboðsins og hafa einir rétt á tilboðsgerð. Tilboð skulu berast fyrir kl. 16:00 miðvikudaginn 15. ágúst.
Óskað er eftir tilboðum í samræmi við útboðsskilmála í fylgiskjali:
Nánari upplýsingar gefur:
Birgir Björn Sigurjónsson
Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar
Sími: 693-9321