Arion banki verður með víxlaútboð þriðjudaginn 14. ágúst 2018.  Um er að ræða víxla til 12 mánaða, 6 mánaða og 5 mánaða með gjalddaga 20. ágúst 2019, 20 febrúar 2019 og 19. janúar 2019.  Markaðsviðskipti Arion banka hafa umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á tölvupóstfangið verdbrefamidlun@arionbanki.is fyrir kl. 16:00 þann 14. ágúst en greiðslu- og uppgjörsdagur er 20. ágúst 2018.

Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108.