Í viku 28 keyptu Sjóvá-Almennar tryggingar hf. 2.167.600 eigin hluti að kaupverði 32.864.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Vika | Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
28 | 9.7.2018 | 09:30:00 | 834.000 | 15,50 | 12.927.000 |
28 | 9.7.2018 | 09:32:05 | 166.000 | 15,50 | 2.573.000 |
28 | 11.7.2018 | 09:46:05 | 167.600 | 15,00 | 2.514.000 |
28 | 12.7.2018 | 14:48:06 | 1.000.000 | 14,85 | 14.850.000 |
Samtals | 2.167.600 | 32.864.000 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 11. júní 2018.
Sjóvá átti 11.013.156 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 13.180.756 eigin hluti eða sem nemur 0,93% af útgefnum hlutum í félaginu.
Sjóvá hefur keypt samtals 13.180.756 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,93% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 213.844.059 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 35.620.429 hlutum eða sem nemur 2,50% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 550.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins 2019, en þó aldrei lengur en til 8. mars 2019, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir:
Sigríður Vala Halldórsdóttir, fjárfestatengill, s. 440-2000 eða fjarfestar@sjova.is