Arion banki hf. lauk í dag, miðvikudag, útboði á víxlum til tólf, sex og fimm mánaða. Í heild bárust 19 tilboð upp á 3.720 milljónir kr. og var tilboðum tekið fyrir 3.120 milljónir kr.
Í heild bárust 5 tilboð í 5 mánaða víxilinn að fjárhæð 620 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,29% - 4,35%. Samþykkt voru tilboð að nafnverði 240 milljónir á 4,30% flötum vöxtum.
Í heild bárust 12 tilboð í 6 mánaða víxilinn að fjárhæð 2.900 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,32% - 4,35%. Samþykkt voru tilboð að nafnverði 2.880 milljónir á 4,35% flötum vöxtum.
Í heild bárus 2 tilboð í 12 mánaða víxilinn að fjárhæð 200 milljónir kr., á 4,55%-4,59% flötum vöxtum. Engum tilboðum var tekið í 12 mánaða víxla að þessu sinni.
Stefnt er að því að víxlarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Íslandi 20. Júlí næstkomandi.
Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka haraldur.eidsson@arionbanki.is s: 856-7108.