Árshlutareikningur Sýnar hf. fyrir fyrsta ársfjórðung 2018 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 16. maí 2018.
Á aðalfundi félagsins í mars var samþykkt að nafnabreyta félaginu úr Fjarskipti hf. í Sýn hf. Í desember 2017 keypti félagið tilteknar eignir og rekstur 365 miðla hf. og gætir áhrifa af því á samanburð fjárhæða á milli ára. Einskiptisliðir í tengslum við kaupin höfðu áhrif á afkomu fjórðungsins og er leiðrétt afkoma sýnd hér fyrir neðan. Einskiptisliðirnir eru samsettir úr fjölmörgum mismunandi liðum í tengslum við kaupin.
Stefán Sigurðsson, forstjóri:
"Það er ánægjulegt að sjá fyrsta fjórðung sameinaðs fyrirtækis skila tekjuaukningu upp á 69% sem er umfram væntingar. Fyrsta skref samrunans hefur verið að tryggja yfirfærslu viðskiptavina og tekna félagsins sem hefur tekist vel hingað til, þrátt fyrir mikið álag í tengslum við samþættingu. Kostnaður fjórðungsins er hár enda samlegðar ekki tekið að gæta í neinum mæli, auk þess sem samrunakostnaður er talsverður í fjórðungnum, sem og afskriftir og skuldsetning hækka með stærri efnahag. Verkefni ársins er að lækka kostnað sameinaðs félags en samlegð mun skila sér af sífellt meiri krafti eftir því sem líður á árið. Stendur félagið við þær áætlanir að 1.000-1.100 milljónir í samlegð verði náð fram innan 18 mánuða, það er um 60% af heildaraukningu EBITDA við kaupin. Áfram er einnig gert ráð fyrir að sameinað félag skili meira en 5 ma.kr. EBITDA árið 2020.
Sameinað fyrirtæki undir merkjum Sýnar er mjög alhliða og sterkt í fjarskiptum og fjölmiðlun. Fyrirtækið er til dæmis annað stærst samkvæmt nýrri skýrslu PFS þegar kemur að markaðshlutdeild á farsímamarkaði (32,8%), gagnatengingum (37,1%) og gagnvirku sjónvarpi IPTV (47,4%) við lok ársins 2017.
Fyrstu mánuðir samrunans fara vel af stað og hann á að geta verið mjög jákvæður gagnvart öllum haghöfum. Auk þess að geta skilað meira en 5 ma.kr. í EBITDA árið 2020, munu starfsmenn á árinu vera sameinaðir á einn stað í nýjum og glæsilegum höfuðstöðvum að Suðurlandsbraut 8-10 og gagnvart neytendum lækkaði verð á völdum sjónvarpspökkum og aðrir stækkuðu. Þessar breytingar hafa verið hluti af áætlunum í tengslum við kaupin frá upphafi og þar af leiðandi inn í horfum sameinaðs félags. Með þessari aðgerð er ætlunin að sækja fram og gefa enn fleirum kost á að gerast áskrifendur að hágæða íslensku og erlendu sjónvarpsefni og íþróttum." segir Stefán Sigurðsson forstjóri Sýnar.
Viðhengi