Útboð Arion banka á 12, 6 og 5 mánaða víxlum – ARION 190520, ARION 181120 og ARION 181019

Arion banki verður með víxlaútboð mánudaginn 14. maí 2018.  Um er að ræða víxla til 12 mánaða, 6 mánaða og 5 mánaða með gjalddaga 20. maí 2019, 20. nóvember 2018 og 19. október 2018.  Markaðsviðskipti Arion banka hafa umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á tölvupóstfangið verdbrefamidlun@arionbanki.is fyrir kl. 16:00 þann 14. maí en greiðslu- og uppgjörsdagur er 18. maí 2018.

Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108.