Hagar hf. birta ársuppgjör sitt fyrir rekstrarárið 1. mars 2017 – 28. febrúar 2018, þriðjudaginn 15. maí nk.
Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn í verslun Bónus á Smáratorgi í Kópavogi, miðvikudaginn 16. maí kl. 8:30 en þar mun Finnur Árnason, forstjóri Haga, kynna afkomu félagsins og svara spurningum ásamt stjórnendum félagsins.
Kynningarefni, ásamt upptöku af fundinum, verður aðgengilegt að honum loknum á heimasíðu Haga, www.hagar.is.