Í 18. viku 2018 keypti Reitir fasteignafélag hf. 757.874 eigin hluti fyrir 68.872.046 kr. eins og hér segir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskipta- verð | Kaup- verð | Eigin hlutir eftir viðskipti |
30.4.2018 | 09:32 | 123.465 | 90,2 | 11.136.543 | 4.251.121 |
30.4.2018 | 09:35 | 26.535 | 90,2 | 2.393.457 | 4.277.656 |
30.4.2018 | 10:17 | 200.000 | 89,5 | 17.900.000 | 4.477.656 |
2.5.2018 | 13:44 | 200.000 | 91,1 | 18.220.000 | 4.677.656 |
3.5.2018 | 11:26 | 7.874 | 91,7 | 722.046 | 4.685.530 |
4.5.2018 | 09:36 | 200.000 | 92,5 | 18.500.000 | 4.885.530 |
Samtals | 757.874 | 68.872.046 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 26. mars 2018, sbr. tilkynningu til Kauphallar þann 22. mars 2018.
Reitir hafa nú keypt samtals 4.885.530 hluti í félaginu sem samsvarar 29,61% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 439.702.418 krónum sem samsvarar 29,31% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Reitir eiga nú samtals 4.885.530 hluti, eða 0,69% af heildarhlutafé félagsins.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 16.500.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 1.500 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar öðru hvoru framangreindu hefur verið náð, eða 31. janúar 2019. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við hlutafélagalög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.