Sjóvá: Uppgjör 1. ársfjórðungs 2018 verður birt 14. maí - kynningarfundur sama dag kl. 16:15

Sjóvá-Almennar tryggingar hf. munu birta uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2018 eftir lokun markaða mánudaginn 14. maí. Markaðsaðilum er boðið á kynningarfund í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð kl. 16:15 þann sama dag. Hermann Björnsson forstjóri mun kynna uppgjörið og svara spurningum.

Kynning á uppgjörinu verður aðgengileg á vef Sjóvár www.sjova.is frá þeim tíma er kynningarfundurinn hefst. Einnig verður hægt að fylgjast með fundinum á vefnum á slóðinni www.sjova.is/afkomukynningar.