Síminn hf. - Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í 17. viku 2018 keypti Síminn hf. 37.500.000 eigin hluti að kaupverði 167.850.000 kr. samkvæmt sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Eigin hlutir eftir viðskipti
23.4.201809:33  7.500.000  4,42  33.150.000    204.284.379 
24.4.201812:44  7.500.000  4,425  33.187.500    211.784.379 
25.4.201809:40  7.500.000  4,55  34.125.000    219.284.379 
26.4.201809:43  7.500.000  4,515  33.862.500    226.784.379 
27.4.201810:22  7.500.000  4,47  33.525.000    234.284.379 
Samtals   37.500.000     167.850.000   

Síminn átti 196.784.379 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 234.284.379 eigin hluti eða sem nemur 2,48% af útgefnum hlutum í félaginu.

Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Símans sem tilkynnt var um í  Kauphöll Íslands hf. þann 20. apríl 2018. 

Síminn hefur keypt samtals 37.500.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,40% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 167.850.000 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu að hámarki nema 1.242,4 milljónum króna. Áætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins árið 2019, en þó aldrei lengur en til 15. mars 2019 eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þá dagsetningu.

Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.

Nánari upplýsingar veitir Ásta Nína Benediktsdóttir fjárfestatengill Símans í netfangi fjarfestatengsl@siminn.is