Í 16. viku 2018 keypti Reitir fasteignafélag hf. 600.000 eigin hluti fyrir 54.530.000 kr. eins og hér segir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskipta- verð | Kaup- verð | Eigin hlutir eftir viðskipti | |
16.4.2018 | 11:47 | 200.000 | 90,2 | 18.040.000 | 2.425.831 | |
17.4.2018 | 10:55 | 200.000 | 90,25 | 18.050.000 | 2.625.831 | |
20.4.2018 | 09:51 | 200.000 | 92,2 | 18.440.000 | 2.825.831 | |
Samtals | 600.000 | 54.530.000 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 26. mars 2018, sbr. tilkynningu til Kauphallar þann 22. mars 2018.
Reitir hafa nú keypt samtals 2.825.831 hluti í félaginu sem samsvarar 17,13% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 250.848.749 krónum sem samsvarar 16,72% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Reitir eiga nú samtals 2.825.831 hluti, eða 0,40% af heildarhlutafé félagsins. Er þá miðað við að lækkun hlutafjár í Reitum úr 721.356.201 kr. í 706.356.201 kr., sem samþykkt var á aðalfundi félagsins þann 13. mars sl. vegna kaupa á eigin bréfum á síðasta ári, hafi verið formlega framkvæmd en skráning hennar er nú í lögformlegu ferli.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 16.500.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 1.500 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar öðru hvoru framangreindu hefur verið náð, eða 31. janúar 2019. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við hlutafélagalög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.