Arion banki verður með víxlaútboð mánudaginn 16. apríl 2018. Um er að ræða víxla til 12 mánaða, 6 mánaða og 5 mánaða með gjalddaga 19. apríl 2019, 19. október 2018 og 20. september 2018. Markaðsviðskipti Arion banka hafa umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á tölvupóstfangið verdbrefamidlun@arionbanki.is fyrir kl. 16:00 þann 16. apríl en greiðslu- og uppgjörsdagur er 20. apríl 2018.
Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108.